top of page

Lausnir

Moelven Byggmodul AS afhendir sveigjanlegar einingabyggingar fyrir bæði opinbera framkvæmdaaðila og einkaaðila. Lausnir okkar uppfylla þarfir meðal annars á sviði kennslubygginga, hótela, skrifstofa, stúdentaíbúða og hjúkrunarrýma. Við höfum langa reynslu sem aðalverktaki af afhendingu fullbúinna bygginga.

Hótel

Hótelin sem framleidd eru hjá Moelven Byggmodul AS eru sérsniðin verkefni.

Einingabyggð hótel uppfylla öll skilyrði gildandi laga og reglugerða og hafa jafn langan endingartíma og sambærilegar byggingar sem reistar eru með hefðbundnum byggingaraðferðum. 

Við getum afhent fullbúin hótel með hreinlætisaðstöðu, húsgögnum og sameiginlegum rýmum tilbúin til að taka á móti gestum.

Greenhosue hotel.webp

Hótelherbergið kemur fullfrágengið með öllum innréttingum og fullfrágengnum gólfefnum

Mögulegt er að fá herbergið með lausum innréttingum líka þ.e borðum, fatahengjum rúmi osv.frv að vali verkkaupa. Allt efnisval er að vali verkkaupa.

Hljóðeinangrun: Vegna uppbyggingar modulana fæst einstök hljóðeinangrun milli herbergja sem er langt umfram þær kröfur sem settar eru í reglugerð.

Stuttur byggingartími eða um 8 mánuðir fyrir 80 herbergja hótel.

Baðherbergi er fullfrágengið flísalagt með öllum hreinlætistækjum

Vatnsúðakerfi

Kostir hóteleininga

Vinnubúðir

Vinnubúðir byggðar með einingalausnum frá Moelven ByggModul eru hagkvæm, skilvirk og fljótleg lausn fyrir fyrirtæki sem þurfa tímabundið eða langtíma húsnæði fyrir starfsfólk.

Lausnirnar eru sérsniðnar að þörfum hvers verkefnis og henta vel fyrir framkvæmdir á afskekktum svæðum jafnt sem í þéttbýli.

Einingabyggðar vinnubúðir uppfylla öll skilyrði gildandi laga og reglugerða og hafa sambærilegan endingartíma og byggingar sem reistar eru með hefðbundnum aðferðum. Mikil áhersla er lögð á gæði, einangrun, hljóðvist og loftræstingu til að tryggja góða líðan og öryggi.

Lausnirnar geta meðal annars falið í sér íbúðarrými, sameiginleg rými, eldhús- og matsaðstöðu, hreinlætisaðstöðu og þvottahús. Moelven ByggModul getur afhent vinnubúðir fullbúnar og tilbúnar til notkunar, eftir þörfum verkkaupa.

nup_edited.jpg

Skólar og leikskólar

Skólar og leikskólar byggðir með einingalausnum eru sérsniðnir að þörfum notendanna. Byggingarnar uppfylla öll skilyrði gildandi laga og reglugerða, og endingartími þeirra er sambærilegur við byggingar sem reistar eru með hefðbundnum aðferðum.

Lausnirnar fela meðal annars í sér kennslustofur, hópherbergi, skrifstofur fyrir starfsfólk, búningsaðstöðu og sameiginleg rými. Við leggjum mikla áherslu á gæði þegar kemur að hljóðvist, einangrun, loftræstingu og dagsbirtu – og tryggjum að byggingin sé góður staður til að læra og starfa í.

Moelven Byggmodul býður upp á heildarlausnir sem fela í sér hönnun, framleiðslu, uppsetningu og frágang – og ef óskað er, einnig með innréttingum.

blue hotel.jpg

Skrifstofur

Ef starfsemin hefur „vaxið upp úr húsnæðinu“ eða flytja þarf í aðra byggingu með fullkominni skrifstofuaðstöðu af öðrum ástæðum getur einingabygging verið mun skjótvirkari lausn en hefðbundin staðbygging skrifstofuhúsnæðis.

Hraður byggingartími skerðir ekki gæði. Byggingarnar uppfylla öll skilyrði gildandi laga og reglugerða og hafa jafn langan endingartíma og skrifstofur sem byggðar eru með hefðbundnum aðferðum.

Einingarnar eru afhentar fullbúnar með loftræstingu, einangrun og tæknilegum innviðum og hægt er að laga þær að þörfum fyrirtækisins. Lokafrágangur er hraður og skilvirkur.

Moelven Byggmodul getur afhent fullbúna skrifstofubyggingu með skrifstofuhúsgögnum, fundarherbergjum, eldhúsi/mötuneyti, matsal o.fl.

Modulbyggingar_2.jpg

Fjölbýlishús

Einingabyggð fjölbýlishús frá Moelven ByggModul eru hagkvæm og hraðvirk lausn fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, án þess að dregið sé úr gæðum, öryggi eða endingu. Húsin eru sérsniðin að þörfum verkkaupa og hægt er að útfæra fjölbreyttar íbúðagerðir.

Byggingarnar uppfylla öll skilyrði gildandi laga og reglugerða, og endingartími þeirra er jafn langur og sambærilegra fjölbýlishúsa sem byggð eru með hefðbundnum aðferðum. Einingarnar eru framleiddar innandyra við stýrðar aðstæður sem tryggir nákvæmni, gæði og minni áhættu á byggingargöllum.

Fjölbýlishúsin eru afhent með fullbúnum íbúðum, þar á meðal eldhús- og baðinnréttingum, góðri hljóðeinangrun, loftræstingu og vönduðum frágangi. Moelven ByggModul býður upp á heildarlausnir, allt frá hönnun og framleiðslu til uppsetningar og afhendingar fullbúins hús.

Móavellir.jpg

Loftræsikerfi: Í öllum íbúðum er hver íbúð með sérstætt loftræsikerfi með inn og útsogi með varmaupphitun. 

Hljóðeinangrun: Vegna uppbyggingar modulana fæst einstök hljóðeinangrun milli íbúða sem er langt umfram þær kröfur sem settar eru í reglugerð.

Vatnsúðakerf: Í húsum sem eru þrjár hæðir og hærri eru íbúðir útbúnar vatnsúðakerfi.

Vatnsvörn: Allar íbúðir eru búnar vatskynjurum bæði undir uppþvottavél og vaski í eldhúsi sem og í lagnarými. Vatnsskynjari lokar fyrir vatn viðkomandi íbúðar ef kerfið skynjar vatnsleka.

Hitaskynjari: Hitaskynjari er yfir helluborði sem slekkur á helluborði ef hiti yfir helluborði verður of mikill.

Útveggjaklæðning 

Kostir íbúða
Modulbyggingar_1.jpg
Skoðaðu verkefnin okkar
bottom of page