top of page

Um okkur

Einfalt - Hagkvæmt - Fljótlegt
Modulbyggingar ehf. var stofnað árið 2017

Modulbyggingar ehf. var stofnað árið 2017 með það markmið að leggja sitt af mörkum til að leysa húsnæðisþörf á Íslandi með hagkvæmum, hraðvirkum og vönduðum byggingarlausnum. Fyrirtækið byggir á lausnum sem hafa verið notaðar með góðum árangri í áratugi í nágrannalöndum Íslands.

Zrzut ekranu 2026-02-13 o 19_edited.jpg
Einingarnar eru framleiddar samhliða allri undirbúningsvinnu 

Einingarnar eru framleiddar samhliða allri undirbúningsvinnu á byggingarstað. Með slíku fyrirkomulagi er verið að vinna á tveimur stöðum í einu og uppsetingin hússins getur hafist um leið og sökklar er tilbúnir. Þetta fyrirkomulag leiðir til skemmri byggingartíma og þar af leiðandi minni fjármagnskostnaðar.

Móavellir 8_1.jpg
Moelven er eitt elsta og stærsta timbu

Moelven er eitt elsta og stærsta timbur - og byggingarfyrirtæki Norðurlanda. Fyrirtækið var stofnað árið 1899 og starfar á 52 stöðum í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, með um 3.500 starfsmenn.

 

Einingahús Moelven hafa verið framleidd á færibandi síðan 1966. Moelven er stærsti framleiðandi sinnar tegundar í Skandinavíu og rekur sérhæfðar móduleiningaverksmiðjur í Noregi og Svíþjóð, þar sem öll framleiðsla fer fram innandyra við stýrðar aðstæður.

Modulbyggingar_1.jpg

Eigendur Modulbygginga eru:

Modulbyggingar ehf. owners_1.1.jpg

Vilhjálmur Sigurðsson

Vilhjálmur Sigurðsson, sem býr yfir 29 ára reynslu af rekstri fyrirtækja og þróun fasteignaverkefna, þar á meðal hótelverkefna.

Modulbyggingar ehf_edited.jpg

Eiríkur V. Pálsson

Eiríkur V. Pálsson er byggingarfræðingur með víðtæka reynslu á sviði húsnæðishönnunar, verkefnastjórnunar fasteignaverkefna, byggingarstjórnar og framkvæmda.

Modulbyggingar_fav.jpg

Kjartan Sigurbjartsson

Kjartan Sigurbjartsson er byggingarfræðingur með víðtæka reynslu á sviði húsnæðishönnunar, verkefnastjórnunar fasteignaverkefna, byggingarstjórnar og framkvæmda.

Greenhosue hotel.webp
Skoðaðu verkefnin okkar
bottom of page